4 flokkur karla. FRAM

Hér ræður 4 flokkur Fram karlamegin og hér er ekkert væl

27.01.2012 16:40:56 / fram4kk

Góð útkoma í þoltestinu hjá Álftó drengjum

Það var mjög góð útkoma hjá strákunum í Álftó sem fóru í píb-testið í leikfimistíma.
Píb-testið er test sem er notað innan grunnskóla Reykjavíkur til að sjá þolástand hjá nemendum skólanna.

Strákarnir í 7 og 8 bekk Álftó sem iðka fótbolta komu mjög vel út en nú spyr ég um þessi sömu test í Hvassó,Ingunnarskóla og Sæmundarskóla.
Látið mig vita hvernig talan var hjá ykkur og ef að þið hafið ekki enn farið í testið þá gerið svo vel að gefa ykkur alla í þetta test.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2012 09:48:08 / fram4kk

Æfingagjöldin 2012

Ágætu foreldrar/forráðamenn.

 

Vakin er athygli á því að búið er að opna fyrir skráningu árið 2012 í hinu nýja skráningar- og greiðslukerfi Fram á netinu.

Þeir sem hafa ekki þegar gengið frá greiðslu æfingagjalda 2012 eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá greiðslu á netinu.

Eins og áður verður hægt að greiða með kreditkorti.  Hægt verður að skipta gjaldinu í allt að 6 greiðslur.  Einnig geta þeir sem eru með lögheimili í Reykjavík áfram greitt með frístundakorti Reykjavíkur.  Frístundastyrkurinn fyrir árið 2012 er kr. 25.000-.

Þeir sem vilja greiða með peningum eru beðnir um að hafa samband við skrifstofur Fram í Safamýri eða Grafarholti.

Ekki verða lengur sendir út greiðsluseðlar.

Veittur er systkinaafsláttur, þannig að elsta barn greiðir fullt gjald en yngra fær 20% afslátt.  Afslátturinn reiknast í kerfinu og reiknast 10% af hvoru gjaldi þegar greitt er fyrir seinna barnið. 

Hægt er að sækja um æfingastyrk FRAM sem er endurgreiðsla til þeirra iðkenda sem stunda fleiri en eina íþróttagrein yfir árið. Sjá upplýsingar um æfingastyrk á heimasíðu Fram.


Smelltu hér til að ganga frá skráningu/greiðslu eða uppfæra upplýsingar

Samkvæmt reglum knattspyrnudeildar Fram er börnum með ógreidd æfingagjöld ekki heimilt að taka þátt í mótum.


Nánari upplýsingar veita: 
Þór Björnsson, íþróttastjóri 533 5600, toti@fram.is 
Daði Guðmundsson, íþróttafulltrúi í Grafarholti 587-8800, adi@fram.is">dadi@fram.is 

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2012 18:08:55 / fram4kk

Reykjarvíkurmótið og æfingagjöldin

Nú þegar RVK-mótið er að fara að hefjast þá eiga menn að fara séu þeir ekki búnir  að klára að greiða eða semja um æfingagjöldin fyrir vorið og sumarið.

Það munu koma útskýringar inn á bloggsíðuna okkar á morgunn eða föstudag þar sem útskýrt verður hvað gera skal.Einnig er hægt að hafa samband við Tóta í Safamýri eða Daða í Grafarholti með allt í kringum þennan pakka.

Bæði er frístundarstyrkur og einnig styrkur fyrir þá sem stunda handbolta með fótboltanum.

Engin afsökun fyrir því að fara ekki í þetta strax því enginn má spila né æfa séu æfingagjöldin ógreidd.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2012 16:28:55 / fram4kk

Fimmtudagur-Safamýri-kl 18,30

Rútan fer frá grafarholti kl.18.00

Kveðja Þjálfarar

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2012 22:48:53 / fram4kk

Miðvikudagur-Safamýri kl 18,00

Flott æfing í kvöld hjá ykkur strákar og ég,Steini og Villi vorum allir mega ánægðir með ykkar framlag í kvöld.Þegar þið eruð með bros á vör og komið til að hafa gaman á æfingum verður allt mikið skemmtilegra.Mikið spil á miðvikudaginn þegar Villi er búinn að láta ykkur hita ærlega upp með skemmtilegum og snörpum hlaupum.

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2012 21:43:55 / fram4kk

Þriðjudagur-Grafarholtið kl 18,45

Rútan fer kl 18,15

Völlurinn frábær og allir að mæta.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2011 20:14:37 / fram4kk

Aðeins fleiri með að Utd falli út

Það munar aðeins einu atkvæði á að menn vilji sjá Man.Utd detta út úr meistaradeildinni heldur en að þeir haldi sig inni
.Er ekki skemmtilegast að hafa sem flest toppliðin í kökunni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2011 22:34:02 / fram4kk

Man.Utd og Liverpool eru pirrandi

Það er allavegana álit 4 flokks bloggsíðu Fram samkvæmt skoðunarkönnuninni en Man.Utd er þó meirra pirrandi af þessum tveimur félögum því liðið fær flest atkvæðin.

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2011 20:34:05 / fram4kk

Pistill frá Lalla

Nú er þessa dagana verið að fara meira í  taktík á 11 manna vellinum.
Æfingin í dag var einmitt í þeirri hugsun þar sem við tókum taktíkina á meðan við spiluðum á heilan völl og svo í hvíldinni þegar leikurinn var stoppaður.
Það var margt gott í dag í spilinu en samt löng leið framundan sem er eðlilegt þegar þú ert í 4 flokki.

Það sem ég var ekki sáttur með var hvursu marga eldri árs stráka vantaði í dag,laugardag.
Það voru þrír þjálfarar á æfingunni í dag sem er eithvað sem ósköp fá félög sem geta hrósað sér með því að hafa þennan fjölda af aðalþjálfurum með einum flokki þó svo sé ekki á öllum æfingum.

Nú taka við æfingaleikir og þá sjáum við enn betur hvað laga þarf aukalega.
Til þess að árangur náist verður flokkurinn að vera með góðar mætingar því það er eina leiðin til að ná árangri.



Nú munum við einnig koma með skoðunarkannanir um allt og ekkert og endilega að taka þátt í þeim.

Verið svo duglegir að lesa það sem Villi skrifaði hér í færslunni á undan.

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2011 18:52:21 / fram4kk

Leikskipulag á 11 manna velli !!

Sælir strákar !!

Æfingin áðan var fín að mörgu leyti. Leikmenn voru að spila stöður á 11 manna velli sem þeir hafa aldrei gert áður og sást það vel að við þurfum að æfa okkur vel í leikskipulagi bæði í sóknaraðgerðum og varnaraðgerðum. Ég ætla í þessu bloggi að fara yfir ákveðna punkta út frá hverri stöðu sem leikmenn verða að hafa á hreinu ef þeir ætla sér að spila árángursríkan fótbolta næsta sumar.

Við byrjum á varnarleiknum en hann er undirstaðan í að ná árangri. Með varnarleik er ég ekki eingöngu að tala um öftustu línuna sem eru tveir bakverðir og tveir miðverðir. Ég er að sjálfsögðu að tala um varnarleikinn hjá liðinu í heild en varnarskyldan byrjar hjá fremsta manni sem á að vera duglegur að djöflast í varnarmönnum hins liðsins svo hann fái engan frið til þess að bera upp boltan.
Þegar við erum að verjast er best að við þéttum liðið sem best, þannig að erfitt sé að spila okkur í sundur. Kantmenn eiga að að þétta inn á miðjuna og hjálpa miðjumönnunum að vinna boltann. Það segir sig sjálft strákar að ef við erum þéttir fyrir og nennum að sinna okkar varnarskyldum er miklu erfiðara að komast í gegnum vörn okkar og skora.
Miðverðir : Eru leikmenn sem eru hjarta varnarinnar. Þeir bera ábyrgð á að stjórna varnarleiknum og eiga að láta vel í sér heyra og stjórna miðjumönnunum fyrir framan sig. Þeir verða að passa sig að vera ekki of flatir og eiga að dekka vel upp fyrir hvorn annan. Þegar liðið þeirra er með boltann og eru í sókn er stranglega bannað að horfa á og vera lengi að koma sér út úr vörninni. Gott að setja sér viðmið að vera rétt fyrir aftan miðjuna. Þessir leikmenn þurfa að geta unnið alla skallabolta og tæklingar og lesa leikinn mjög vel. Bestu leikmenn i þessari stöðu eru t.d John Terry, Nemanja Vidic ofl.

Miðjumenn eru lykilmenn í að stjórna leiknum, ef við erum með yfirburði á miðjunni þá get ég lofað því að það er líklegra að við vinnum leiki en ekki.
Varnarmiðjumaður þarf að halda svæði sínu vel og má ekki hlaupa óþarfa hlaup út úr stöðu nema hann sé viss um að einhver annar taki stöðu hans á meðan hann fer með í sóknina. Hans hlutverk er að vinna alla lausa bolta á miðjunni, allar tæklingar, skallabolta og það mikilvægasta að vernda varnarmenn okkar en þá er ég aðalega að tala um miðverðina tvo, hann á líka að stýra hinum miðjumönnunum og láta vel í sér heyra. Einnig á Varnarmiðjumaðurinn að vera vakandi fyrir því ef bakvörðurinn fer upp með boltann í sóknarleikinn að loka því gati sem hann skilur eftir sig þar. Hann á að loka sendingarleiðum á sóknarmennina þeirra og miðjumenn og passa það að miðjumenn komist ekki á vörnina með boltann svo varnarmennirnir þurfi að rjúka út í manninn en þá myndast oft hola fyrir aftan vörnina sem klókir senterar nýta sér gjarnan. Einng er varnarmiðjumaður gríðarlega mikilvægur í uppspili þar sem hann getur verið að dreifa boltanum frá hægri til vinstri kants ef hann er góður á boltann. Bestu leikmenn í heimi í þessari stöðu eru t.d í dag Xabi Alonso,Michael Essien.Javier Mascerano.
Miðjumaður CM. Leikmaður sem spilar á miðri miðjunni á að sjálfsögðu að hafa alla þessa þætti á hreinu sem varnarmiðjumaðurinn hefur. Hann má þó hafa frjálsara hlutverk fram á við og verður þessi leikmaður að vera með mikið þol, en hann þarf að geta hlaupið frá teig til teigs. Þessi leikmaður er oft primus mótorinn í líðinu og þarf að vera sterkur karakter. Hann er alltaf á hreyfingu og bjóða sig til þess að gera sig líklegan til að fá boltann. Hann bindur vel saman sóknar og varnarleik og þessi leikmaður á að fá boltann mikið í fætur.
Sóknarmiðjumaður Hlutverk hans er jafnvmikilvægt í vörn sem sókn. Þessi leikmaður á að vera gríðarlega góður á boltann og búa yfir mikillri boltatækni. Hann á að vera eins og hinir miðjumennirnir með mikla hreyfingu án boltann og vera duglegur að bjóða sig í holunni á milli miðju og varnarmenn andstæðingana. Þessi miðjumaður þarf að hafa mikinn leikskilning og verður að geta séð fyrir hlaup sem kantmenn og senterar eru að gera og sent í eyðurnar sem þeir geta nýtt sér. Mesta hættan í fótbolta leik myndast oft þegar að þessi leikmaður nær að fá boltann á sóknarhelming og nær að koma á miklum hraða á vörnina, þá getur hann valið um að senda úrslitasendingu inn fyrir eða sólað varnarmanninn sjálfur og fara í sókn.

Bakverðir/Kantmenn : Eru oftast fljótir og með góða spyrnutækni. Ef að gott kantspil á að myndast er mikilvægt að þegar hans lið er með boltann að hann les leikinn rétt og dregur sig út á hliðarlínu til þess að skapa sér meira pláss. Hann á líka að vera duglegur að stinga sér inn fyrir vörn andstæðingana. Gott kantspil myndast oft á milli bakvarðar og kantmanns þegar að bakvörðurinn kemur með í sóknina og tekur utanáhlaup við kantamanninn. Þessi hlaup eru gríðarlega mikilvæg í nútímafótbolta. Í varnarleik á hann að þétta vel inn á miðju en hafa alltaf sjónar á kantmanninum sínum sem hann á að dekka.Bakvörðurinn verður að gegna varnarskyldum sínum vel og passa að ekki sé hægt að setja háan bolta yfir hausinn á sér svo andstæðingurinn komist upp að endamörkum. Hann þarf að stjórna vörninni með hinum varnarmönnum og þarf að passa sig á því að vera alltaf í linu vegna rangstöðunnar. Bestir í þessari stöðu í heimi í dag eru sem kantmenn : Gareth Bale, Ashley Young, Angel Di maria
Í bakverði eru það : Ashley Cole, Patrice Evra, Daniel Alves og Philip Lahm.

Senterar: Eiga að sinna varnarskyldunni sinni jafnvel og hinir. Þeir eiga að liggja í öftustu varnarmönnum hins liðsins og nýta sér öll mistök sem þeir gera og vera fljótir að refsa. Þeir eiga alltaf að vera bjóða sig og gera sig líklega til þess að fá stungusendingu inn fyrir og skora mörkin. Klókir senterar lesa leikinn mjög vel og staðsetja sig oft mjög vel. Hann þarf að hafa hraða,boltatækni,skallatækni ofl. Það getur verið gulls ígildi að hafa góðan senter sem skorar mörk og leggur upp. Bestir í heimi eru : Ronaldo, Rooney, Luis Suarez og Messi.

Ég hvet ykkur alla til þess að lesa þetta mjög vel og pæla vel í þessu en við ætlum að setja upp smá töflufund bráðum áður en við tökum okkar fyrsta æfingaleik sem verður líklega næstkomandi laugardag gegn Aftureldingu. Strákar nú bið ég ykkur um að kikja á bloggið á daglega því við ætlum núna að fara að vera duglegri að blogga og koma með allskyns fróðleik. Varðandi mætingu leikmanna þá þarf hún að vera miklu betri hjá sumum en við þufum að æfa vel í vetur svo það skila sér út á vellinum í sumar. Æfingin skapar meistarann :)

Sjáumst ferskir á Þriðjudaginn kl. 18.30 í safamýri ;)

Ps. svo fer gervigrasið í grafarholtinu að vera tilbúnir og við látum ykkur vita hérna á blogginu með nýja æfingatöflu.

Kveða Villi


» 0 hafa sagt sína skoðun


Talning
Eftir 28 daga
Reykjarvíkurmótið byrjar
Heimsóknir
Í dag:  53  Alls: 71284
Könnun
Hvor er betri í dag ?


Talning
Eftir 73 daga
Vorið er komið